
Brettafélag Hafnarfjarðar býður upp á hjólabrettaæfingar fyrir byrjendur og lengra komna.
Æfingar fara fram í nýjum húsakynnum félagsins að Selhellu 7 í Hafnarfirði.
Skráning opnar 1.ágúst
Fyrsta æfing 1.sept
Loka æfing 18.des
Æfingar á mánudögum 17:00-22:00 og fimmtudögum 17:00-22:00
Skipt verður í 4 hópa. Æfingar hjá 2012 og yngri eru í 60mín en hjá 2011 og eldri í 90mín
Verð:
2012 og yngri: 52.000 kr.
2011 og eldri: 70.000 kr.
Hægt að nota frístundastyrki frá sveitarfélögum og hægt að skipta greiðslum í 4 hluta.
Einnig er 10% systkinaafsláttur
Einnig verða mikið af skemmtilegum viðburðum í vetur/vor t.d. Halloween skate, BFH-mót, litlu jól BFH og margt fleira.
Við hlökkum gríðarlega mikið til komandi vetrar og viljum minni á að það eru takmörkuð pláss á æfingar, og gaman að segja frá því að aðsókn á sumarnámskeið BFH og æfingar á liðinni haustönn var mjög mikil, það var fullt á öll námskeið í sumar og vor 2025.
Ath að öll samskipti í kringum æfingar hjá BFH fara í gegnum sportabler hér má nálgast leiðbeiningar um uppsetningu og annað tengt því https://www.bfh.is/sportabler
Alltaf hægt að hafa samband með því að senda póst á bfh@bfh.is
Ath hjálmaskylda er á námskeiðinu. Hægt er að fá lánaðan búnað í afgreiðslu en mælum með að iðkendur séu með sinn eigin búnað.


