SKRÁNING Á HJÓLABRETTA SUMARNÁMSKEIÐ BFH 2024 ER HAFIN!
Skráning inná https://www.sportabler.com/shop/brettafelaghfj
Brettafélag Hafnarfjarðar býður uppá hjólabrettanámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Námskeiðið fer fram í glænýju húsakynnum félagsins að Selhellu 7 í Hafnarfirði.
Krökkunum verður skipt upp í hópa eftir aldri og getu. Farið verður yfir grunnatriði hjólabrettaiðkunar en einnig verður þeim sem lengra eru komnir leiðbeint í flóknari æfingum. Þegar veður er gott er farið með hópana út á hjólabretti.
Hægt að fá búnað til láns.
Markmið námskeiðanna:
• Kynna hjólabrettaíþróttina fyrir stelpum og strákum á aldrinum 6 til 13 ára
• Hafa gaman saman á hjólabretti
• Læra grunnatriði á hjólabretti
• Kynnast hjólabrettasiðum á hjólabrettasvæðum
• Fyrir lengra komna, æfa flóknari æfingar
Námskeið bæði fyrir og eftir hádegi. 09:00-12:00/ 13:00-16:00
Námskeið: Dags: Tímasetningar:
Námskeið 1 10-13 júní 09:00-12:00
Námskeið 2 10-13 júní 13:00-16:00
Námskeið 3 16-20 júní 09:00-12:00
Námskeið 4 16-20 júní 13:00-16:00
Námskeið 5 23-27.júní 09:00-12:00
Námskeið 6 23-27.júní 13:00-16:00
Námskeið 7 30-4.júli 09:00-12:00
Námskeið 8 30-4.júli 13:00-16:00
Lokað: 7-11.júlí Lokað
Lokað: 14-18.júlí Lokað
Námskeið 9 21-25.júlí 09:00-12:00
Námskeið 10 28-1 ágúst 09:00-12:00
Námskeið 11 5-8.ágúst 09:00-12:00
Námskeið 12 5-8.ágúst 13:00-16:00
Námskeið 13 11-15.ágúst 09:00-12:00
Námskeið 14 11-15.ágúst 13:00-16:00
Námskeið 15 18-22.ágúst 09:00-12:00
Námskeið 16 18-22.ágúst 13:00-16:00
Verð fyrir hvert námskeið er 14.000 kr og 11.200 kr fyrir 4 daga námskeið, veittur er 10% systkinaafsláttur. Fjöldatakmarkanir eru á námskeiðin.
Við mælum með því að krakkarnir komi með létt nesti t.d. ávexti og vatnsbrúsa.
Athugið að ekki er hægt að bíða í húsnæði BFH á milli námskeiða ef iðkendur eru bæði fyrir og eftir hádegi Nema með samþykki yfirmanns
Yfirumsjón með námskeiðinu hefur Jökull Elí, íþróttafræðingur og honum til aðstoðar verða þjálfara frá BFH ásamt hressum krökkum frá Vinnuskóla Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum tölvupóstinn: bfh@bfh.is eða í Sportabler ef búið er að skrá.
Kv. Hjólabrettadeild BFH