top of page
snobretti2.webp

Snjóbrettaæfingar

Ath kynningarfundur snjóbrettadeildar verður 3.des 20:00 í húsnæði BFH ( selhella 7 )

 

Fyrirkomulag vetur 2025

 

Æfingargjöld og annar kostnaður:

 

Æfingatímabil 7. janúar til 22.apríl

 

Æfingagjöld fyrir iðkendur í byrjenda æfingum er 58.000 kr árskort í Bláfjöllum er innifalið

 

Æfingargjöld fyrir almennar æfingar er 88.000 kr, árskort í Bláfjöllum er innifalið.

 ATH Iðkandi verður að geta farið hjálparlaust í toglyftu og tekið beygjur í báðar áttir.

 

Við bjóðum upp á 10% systkina afslátt. Skráning fer fram í gegnum sportabler kerfið. https://www.sportabler.com/shop/brettafelaghfj  kóði: Systkinaafsláttur

 

Niðurgreiðslur sveitarfélaga eiga við hér eins og í öðru íþróttastarfi, s.s. frístundakort o.s.frv.

 

Byrjendur - Æfingardagar og staðsetningar:

 

Miðvikudagar kl: 18:00 – 19:00 eða 19:10-2010. Byrjendum skipt í tvo hópa.


Allar æfingar byrja og enda við kaðall lyftu hjá aðalskála Bláfjalla eða á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins. Fyrsta æfing vetrarins verður 8. Janúar, staðsetning tilkynnt þegar nær dregur, þar ætlum við að kynnast hvert öðru og kanna bakgrunn hvers og eins á snjóbrettinu. Æfingastaður er tilkynntur á Sportabler í síðasta lagi kl. 15 á miðvikudögum hjá byrjendahóp. Athugið að æfingar geta verið á skíðasvæðum þrátt fyrir að svæðið sé lokað almenningi. Mjög mikilvægt að allir séu búnir að borða vel fyrir æfingu. Allir iðkendur verða að vera með hjálm og bakbrynju. Engar skipulagðar ferðir eru á æfingarnar. Við bendum á rútuferðir eða að foreldrar skiptist á að skutla krökkunum.  Yfirþjálfari Byrjendahóps er Ásgeir Örn.

 

 

Almennar æfingar - Æfingadagar og staðsetningar:

 

Þriðjudagar & fimmtudagar kl: 18:00 – 20:00.

 

Allar æfingar í Bláfjöllum byrja við anddyri aðalskála Bláfjalla nema yfirþjálfari tilgreini annað. Æft verður í Bláfjöllum ef veður leyfir. Ef lokað er í Bláfjöllum og Skálafelli verða æfingar haldnar innanbæjar. Á innanbæjaræfingum verða svokallaðar jib æfingar, þ.e. krakkarnir renna sér á rörum, handriðum og litlum pöllum.  Einnig höfum við inniæfingar ef aðstæður bjóða ekki uppá annað þær æfingar eru mjög mikilvægar. Fyrsta æfing vetrarins verður 7. Janúar, staðsetning tilkynnt þegar nær dregur, þar ætlum við að kynnast hvert öðru og kanna bakgrunn hvers og eins á snjóbrettinu. Æfingastaður er tilkynntur á Sportabler í síðasta lagi kl. 15 á þriðjudögum og fimmtudögum.

 

Athugið að æfingar geta verið á skíðasvæðum þrátt fyrir að svæðið sé lokað almenningi. Mjög mikilvægt að allir séu búnir að borða vel fyrir æfingu. Allir iðkendur verða að vera með hjálm og bakbrynju. Engar skipulagðar ferðir eru á æfingarnar. Við bendum á rútuferðir eða að foreldrar skiptist á að skutla krökkunum.

 

Vanalega fer allur janúar mánuður á æfingum í að greina betur getu iðkenda og hliðra til svo viðkomandi fái verkefni við hæfi.

 

BFH er ekki með skipulagðar ferðir eru á æfingarnar en við bendum á rútuferðir samkvæmt rútu áætlun (sjá á www.blafjoll.is ) eða að foreldrar skiptist á að skutla krökkunum.

 

 Ath ef það er lokað í fjallinu fyrir almenning gengur rútan ekki uppí Skíðasvæðin

 

Okkur hlakkar gríðarlega til komandi vetrar og ætlum að gera allt sem við getum gert til að gera þetta að skemmtilegasta og stærsta vetri BFH.

 

Skráning: https://www.sportabler.com/shop/brettafelaghfj

og hægt að senda fyrirspurnir á bfh@bfh.is

bottom of page