top of page

Hjólabretta sumarnámskeið 2024

SKRÁNING Á HJÓLABRETTA SUMARNÁMSKEIÐ  BFH 2024 ER HAFIN!


Skráning inná https://www.sportabler.com/shop/brettafelaghfj


Brettafélag Hafnarfjarðar býður uppá hjólabrettanámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Námskeiðið fer fram í  glænýju húsakynnum félagsins að Selhellu 7 í Hafnarfirði.
Krökkunum verður skipt upp í hópa eftir aldri og getu. Farið verður yfir grunnatriði hjólabrettaiðkunar en einnig verður þeim sem lengra eru komnir leiðbeint í flóknari æfingum. Þegar veður er gott er farið með hópana út á hjólabretti.

Hægt er að leiga búnað af BFH:

Bretti per dag 1.000kr
Hjálmur per dag 1.000kr
Tilboð: Bretti og Hjálmur 6.000 kr heilt námskeið

 

Markmið námskeiðanna:
• Kynna hjólabrettaíþróttina fyrir stelpum og strákum á aldrinum 6 til 13 ára
• Hafa gaman saman á hjólabretti
• Læra grunnatriði á hjólabretti
• Kynnast hjólabrettasiðum á hjólabrettasvæðum
• Fyrir lengra komna, æfa flóknari æfingar

Námskeið bæði fyrir og eftir hádegi nema í júlí þá eru bara námskeið fyrir hádegi

​Dagsetningar:

Námskeið 01      10.6 til 14.6 f.h         

Námskeið 02      10.6 til 14.6 e.h         

Námskeið 03      18.6 til 21.6 f.h ( 4 DAGAR )

Námskeið 04      18.6 til 21.6 e.h ( 4 DAGAR )

Námskeið 05      24.6 til 28.6 f.h

Námskeið 06      24.6 til 28.6 e.h

Námskeið 07      1.7   til  5.7 f.h

Námskeið 08      8.7   til  12.7 f.h

Námskeið 09      15.7 til 19.7 f.h

Námskeið 10    22.7 til 26.7 f.h

Námskeið 11    29.7 til 2.8 f.h        

Námskeið 12    6.8   til 9.8 f.h   ( 4 DAGAR )        

Námskeið 13    6.8   til 9.8 e.h   ( 4 DAGAR )

Námskeið 14    12.8   til 16.8 f.h

Námskeið 15     12.8 til 16.8 e h

Verð fyrir hvert námskeið er 14.000 kr og 11.200 kr fyrir 4 daga námskeið, veittur er 10% systkinaafsláttur. Fjöldatakmarkanir eru á námskeiðin.


Við mælum með því að krakkarnir komi með létt nesti t.d. ávexti og vatnsbrúsa.

Athugið að ekki er hægt að bíða í húsnæði BFH á milli námskeiða ef iðkendur eru bæði fyrir og eftir hádegi.

Yfirumsjón með námskeiðinu hefur Aðalsteinn Valdimarsson, íþróttafræðingur og honum til aðstoðar verða þjálfara frá BFH  ásamt hressum krökkum frá Vinnuskóla Hafnarfjarðar.


Nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum tölvupóstinn: bfh@bfh.is  eða í Sportabler ef búið er að skrá. 

Kv. Hjólabrettadeild BFH

Endilega hafið samband við okkur í gegnum tölvupóst eða í gegnum facebook
bfh@bfh.is
  • Facebook - Black Circle
  • Instagram - Black Circle
Milli 08:00-16:00 virka daga 855-2493
Eftir kl 16:00 og um helgar: 837-7220

Hafðu samband

Takk fyrir fyrirspurnina! Reynum að svara sem allra fyrst

bottom of page